27.12.2007
Gleðileg jól
Ég held að ég sé bara orðin nett geðveik á þessari síðu, það er búið að taka mig allavega einn og hálfan tíma að hlaða inn sjö myndum. Ég ætlaði að setja fleiri en er bara algjörlega búin óg færi sennilega bara yfirum, svo að ég reyni kannski bara aftur einhvertíman seinna. Við vorum heima hjá okkur um jólin og stelpurnar voru hjá okkur líka, en greyjið Guðný var gubbandi allan aðfangadag og gat ekki borðað með okkur, en hún staulaðist inn í stofu og opnaði pakkana með okkur. Það var margt og mikið sem allir fengu og Magnús fékk að tæta pínu pakka og fannst rosa gaman eins líka að öllu dótinu sem heyðist í. Svo var farið að sofa eftir allt pakka og kortaflóðið. Sem betur fer vöknuðu allir hressir og kátir á jóladagsmorgun, og þar sem að Guðnýju leið mun betur þá var ákveðið að halda áætlun og fara i Reyki, og fengum við þar líka þetta ljúffenga hangikjöt og tertur. En svo fóru þessar rollur sem Guðjón dreymdi að stríða mér (þegar hann dreymir hvítar rollur kemur snjókoma og leiðindarveður) og við ákváðum að fara ekki norður á annan, en stelpurnar fóru í jólaboð í hádeginu svo að við erum bara búin að vera þrjú og skruppum í heimsókn. Það er samt eins gott að það verði eitthvað gott veður því að við ætlum að koma norður... þið losnið sko ekkert við okkur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2007
Það er ekki alveg kominn mánuður..
Pjakkurinn er búinn að vera soldið pirraður undanfarna daga, ætli hann sé ekki bara að fara að fá fleiri tennur greyjið.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2007
nóvember..
púff maður, það er alveg agalegt hvað það dettur yfir mann að nenna ekki að blogga. Það er nú samt alveg heilmargt markvert búið að gerast, t.d er Magnús Ingi loksins búinn að hitta 'the great auntie' hann tók sér sko heljarinnar ferð á hendur til þess og stóð sig sko alveg eins og hetja og engill. Honum fannst hún alveg einstaklega skrítin held ég hann hló allavega nóg að henni þegar hann var nú vakandi
ég skil hann líka alveg, alveg furðuleg manneskja þar á ferð. En honum leist svo vel á London að hann svaf bara mest allann tímann nema þegar hann var að hlæja að frænku sinni og svo auðvitað kíkti hann á barinn líka. Annars er hann kominn með tvær tennur í neðri góm og er alveg agalegur töffari með þær, innan við hálfar upp
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2007
AARRRRRRG.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2007
sprauta nr 2
Magnús Ingi fór í skoðun til hjúkku á miðvikudaginn og vigtaðist alveg heil 7920 gr. og 67.5 cm, Samt hafði hann byrjað daginn á að æla öllu sem í hann hafði komið um nóttina held ég, það voru allavega ekkert smá ósköpin og óþægileg tilfinnig að vakna við að barnið liggur með fullan munn af gubbi (hann fer alltaf yfir á bakið af hægri hliðinni). Greta kom samt og kíkti á fótinn á orminum, hann vill helst ekki hafa hægri fótinn réttann hann er alltaf smá snúinn og þegar hann tillir í fæturna þá stendur hann á hlilðinni á fætinum (get bara ekki munað hvað það heitir), og hún skrifaði beiðni í sjúkraþjálfun til að skoða hvort sé ekki örugglega í lagi með hann. Það styttist líka óðum í að við förum út... Fór einmitt með mennina mína að fá vegabréf handa þeim í fyrradag, og ég bara hef aldrei vitað jafn góða þjónustu, eða öllu heldur stutta, í gær morgun þegar ég fer að sækja moggann minn að þá liggja tveir póstar til mannanna minna og haldiði ekki að þar séu vegabréfin komin... innan við sólarhring eftir að við sóttum um þau!! Ég held maður hafi bara aldrei vitað annað eins.. En það er gaman þegar litlu hlutirnir geta líka glatt ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2007
Guðjón fer til London..
Jebbs það er alveg satt.. Guðjón er að fara út í fyrsta skipti og auðvitað er það til London, og við Magnús Ingi fáum að fljóta með. Við förum út á föstudegi og komum heim aftur á mánudegi, verður alveg heljarinnar gaman og frænkan í útlandinu ætlar að reyna koma og hitta frændann sinn í fyrsta skipti. Jújú og svo er þessi pjakkur orðinn svo mannalegur að við fórum saman í sturtu í gær.. og það var meira en kostulegt að horfa á hann. Ég sneri honum frá mér til að þvo magann og þá horfir hann bara þvílíkt mikið upp alveg eins og hann sé að hugsa hvernig í ósköpunum vatnið hafi nú komist þangað.. híhí alveg kostulegur ormurinn sá ![]()
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.9.2007
Konungsbók...
Jæja þetta kemur nú allt saman með kalda vatninu. Það hefur ýmislegt gerst frá því síðast, Magnús Ingi lagði land undir fót (eða kannski rass) og fór alla leið suður til Reykjavíkur á jarðaför sem hann að vísu mætti ekki á nema í erfidrykkjuna í smá stund. Soffía frænka var svo góð að passa hann á meðan mamman og pabbinn fóru á jarðaförina. Í leiðinni heimsótti hann ömmu sína í Hafnarfirði og afa sinn á sjúkrahúsið. Það er líka kominn nýr ofn í eldhúsið, afi kom um síðustu helgi og setti hann upp með dyggri aðstoð frá Guðjóni... eða já... Svo drifum við þau gömlu bara með okkur upp í dal í smá afmæliskaffi, Victor Blær, Valdi, Ingunn og Lilja Rún áttu öll afmæli í kringum mánaðarmótin. Og svo datt ég ofaní Konungsbók og gerði varla nokkuð þangað til hún var búin, þetta er einhver sú besta bók sem ég hef lesið, bara ein sem ég man eftir betri núna það er Veronica decides to die. En nú vill Magnús Ingi litli ormurinn fá svolitla athygli þannig að ta ta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.8.2007
O M G.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.8.2007
Útilega
,,Jæja þá er nú helgin loksins búin og ég get farið að sofa svolítið" Þetta er ég nú bara alveg viss um að barnið mitt hugsaði um leið og við komum heim í gær. Við byrjuðum á því að leggja okkur öll og Magnús Ingi svaf í einhverja tvo tíma minnir mig, svo eftir að hann fór í náttföt og svona þá bara rotaðist hann aftur rétt rúmlega átta og hann svaf til hálf tólf í morgun... með smá matarhléum á milli að vísu, en varla þannig að hann vaknaði. Og svo núna var hann orðinn svo dauðþreyttur að hann sofnaði (kl er sko hálf tvö). Það er nú aldeilis að útilegan okkar hefur farið með hann. Að vísu var þetta bara svona plat útilega, við fórum til afa og ömmu en þar sem að húsið var fullt að þá fengum við afnot af hjólhýsinu ;o) Það fór nú líka bara svona vel um okkur að eina nóttin varð óvart að tveimur..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.8.2007
Magnús Ingi Guðjónsson
Jæja nú getur fólk farið að anda léttar það er komið nafn á barnið mitt.. annað mál er nú hvort að mamman muni að hún megi kalla hann því í staðin fyrir litla rassálfinn minn.. Þetta hlítur nú að komast inn á endanum. En það eru nú eiginlega allir farnir, mislangt að vísu og sumir komnir aftur eftir tilraun til að komast heim. Tengdapabbi var semsagt á leiðinni heim þegar bensíntankurinn fór eitthvað að bila held ég og þar sem þau voru bara rétt komin á laxárdalsheiðina að þá voru þau bara dregin til okkar aftur. Svo eru líka aðrir sem drifu sig bara heim, ég var að fá sms frá Áslaugu og þau voru á Egilsstðum og ætluðu alla leið heim (klukkan er sko orðin rúmlega miðnætti). En það er allavega búið að vera mikið um gesti og gjafir hjá honum Magnúsi mínum, ekki nema þriggja mánaða greyjið samt.. já og minnst á það, hann var í skoðun á síðasta mánudag og mældist 7060gr og 63cm. Gunnu frænku leyst bara vel á piltinn og ég held að hann muni nú ekkert erfa það við hana þó að hún hafi stungið hann, hann allavega bara rétt gretti sig þegar hún stakk og var svo bara hugrakkur og grét ekkert (engill, alveg eins og mamman:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Myndaalbúm
Fólk..
-
Barnið
Freknótt í fíling
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 3852
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







